157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

beiðni um sérfræðiaðstoð.

[16:25]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Virðulegur forseti. Það kom fram í máli hv. þm. Jens Garðars Helgasonar að það væru ágætir brúarsmiðir í Norðausturkjördæmi, þ.e. þingmenn, og átti þar við hv. þingmenn Sigurjón Þórðarson og ég ætla ekkert að draga úr því. En ég er svo sem sömuleiðis, held ég, ágætisbrúarsmiður hvað það varðar og reyni að leita hér einhverra leiða til að leiða þetta í jörð. Ég verð að segja það, virðulegi forseti, að þetta er einföld beiðni. Það stendur skýrt í reglunum hvernig þetta eigi að vera. Við getum verið hér og karpað fram og til baka í staðinn fyrir að leysa þessa einföldu hluti á þann hátt að forseti sker úr um það. Þannig hljóða reglurnar. Þetta snýst í sjálfu sér ekki um neitt annað. Þannig að enn og aftur leitum við ásjár forseta og horfum til þess að forseti er forseti alls þingsins hvað þetta varðar, það er mjög mikilvægt, og að þingstörf geti gengið áfram. Þetta er einföld beiðni. Hún er skýr.