beiðni um sérfræðiaðstoð.
Herra forseti. Ég tek undir með þeim sem á undan hafa komið. Ég skil eiginlega ekki alveg vandamálið við að skera úr um þetta mál. Mig langar líka að ítreka það sem ég kom inn á áðan, að það væri gott að heyra afstöðu hv. þm. Viðreisnar og Samfylkingarinnar, sérstaklega þeirra sem eru í nefndinni, til málsins. Hv. þm. Pawel Bartoszek kom hérna áðan og vildi bara keyra málið áfram. En það er vandamálið, þetta er svo óþægilegt fyrir þessa flokka að þau vilja bara keyra málið áfram. En það gengur ekki upp af því að eins og hv. þm. Sigurður Örn Hilmarsson nefndi hérna áðan þá viljum við vanda vel til verka. Við viljum ekki löggjöf sem stenst illa skoðun. Við viljum að það sem frá okkur kemur sé í lagi. Þess vegna ítreka ég að hv. þingmenn Viðreisnar og Samfylkingar, sem bera ábyrgð á þessu, komi hér upp og geri grein fyrir því af hverju ekki má fá þetta álit. Við hvað eru hv. þingmenn meiri hlutans svona hræddir? Að það komi í ljós hversu gallað þetta er? Er það vandamálið? Það væri mjög áhugavert ef einhver kæmi hér upp og segði okkur við hvað þeir eru hræddir.