beiðni um sérfræðiaðstoð.
Herra forseti. Í ljósi þeirra orða sem hér eru búin að falla varðandi fundarstjórn forseta og gefið í skyn að minni hlutinn sé með einhverjum hætti ósanngjarn gagnvart forseta þá hafna ég því. Ég get alveg hælt forseta fyrir að hafa orðið við þeirri ósk áðan að gera hlé á fundi og verða svo aftur við þeirri ósk hvenær hléið yrði gert. Það er full ástæða til þess. En forseti fór jafnframt hér í stóli forseta áðan allfrjálslega með túlkun, að mínu mati, á 62. greininni. Þess vegna held ég að við stöndum hér enn. Ég held að allir í þingsalnum sem eru búnir að lesa þessa grein geri sér grein fyrir því að heimildin er skýr. Hér var um að ræða, ef ég man rétt, Lagastofnun Háskóla Íslands, sem var kölluð einhver aðili úti í bæ. Þannig að það er líka verið að reyna að tala niður þá aðila sem verið er að óska eftir að komi fyrir nefndina, þá aðila sem minni hlutinn er að benda á að hafi ekki fengið að koma (Forseti hringir.) fyrir nefndina. Þeir eru bara orðnir einhver aðili úti í bæ eins og pylsuvagninn á horninu.