157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

beiðni um sérfræðiaðstoð.

[16:30]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég kem upp öðru sinni til að lýsa yfir hversu hissa ég er á vinnubrögðum meiri hlutans hér á Alþingi Íslendinga. Ég er einhverra hluta vegna bara engu nær eftir þennan fund forseta með þingflokksformönnum fyrr í dag, engu nær, og ég ætla að biðla aftur til forseta um að gera hlé á þessum þingfundi, að setjast aftur niður með þingflokksformönnum og leiða þetta mál í jörð. Mér þykir afskaplega miður að upplifa það enn eina ferðina hvernig meiri hlutinn hér í þessu húsi telur minni hlutann algerlega óþarfan í öllum sínum störfum. Það er ekki svo. Það fer í taugarnar á meiri hlutanum, hvort sem það er í nefndum eða í þessum sal, að minni hlutinn skuli yfir höfuð hafa skoðun (Forseti hringir.) og við erum afskaplega mikið fyrir meiri hlutanum og þegar svo er þá verður úr vond lagasetning. Ég get ekki betur séð en að meiri hlutinn (Forseti hringir.) sé að vinna hér fyrir sérhagsmuni en ekki fyrir almannaheill þjóðarinnar.