beiðni um sérfræðiaðstoð.
Virðulegur forseti. Já, það er með eindæmum að horfa upp á þetta, að ekki sé hægt að verða við þessari einföldu beiðni. Með því er verið að sýna fram á hversu lítið tillit er tekið til þess að frekari umsagna og álita sé þörf. Við þurfum að vanda lagasetningu, það hefur komið skýrt fram hérna eins og oft áður, og við þurfum að taka alvarlega þær umsagnir og þau álit sem berast. Því vil ég taka það fram og benda á að hér fyrir helgi vorum við að ræða breytingar á almannatryggingum og þessum þætti, launavísitölu versus launaþróun. Það var mjög skýrt kveðið á um það hér úr ræðustóli að í 3. umræðu yrðu kallaðir til þeir sérfræðingar sem hafa komið fram á allra síðustu dögum og enn bætist í þeirra hóp, eins og Seðlabanki Íslands núna, sem lýsa yfir vonbrigðum og vara við áhrifum af þessum breytingum. (Forseti hringir.) En á fundi nefndarinnar í fyrramálið er stefnt að afgreiðslu án þess að nokkur af þessum aðilum hafi verið boðaðar til fundarins eins og mjög skýrt var komið á framfæri í síðustu viku.