beiðni um sérfræðiaðstoð.
Virðulegi forseti. Mig langaði aðeins að koma hérna upp og taka undir með félögum mínum í stjórnarandstöðunni að það er auðvitað mjög sérstakur bragur á þessu máli og verkefnið okkar hér á þinginu hlýtur að vera að skila af okkur sem vandaðastri og bestri lagasetningu sem þolir skoðun og hefur tekið til greina öll sjónarmið. Þess eru auðvitað mörg dæmi, og alls ekki óvenjulegt t.d. þegar snýr að einhverjum atvinnuvegum, að látið sé reyna á gildi svona lagaðs, stjórnskipulegt gildi o.fl. Þannig að ég held að það myndi styrkja málið en ekki veikja það að fá þessa umsögn og þetta álit sem um er rætt og var búið að samþykkja. Hér erum við að tala um Lagastofnun Háskóla Íslands. Það er ekki eins og við séum að tala um hvern sem er úti í bæ sem verið er að biðja um að veiti álit hér. Áferðin á þessu máli er sérstök og það er ansi freistandi að líta svo á að það sé eitthvað í þessu áliti sem flutningsmenn frumvarpsins óttist og vilji síður fá fram. Ég tek undir það sem fram hefur komið hér í dag og hvet forseta til að höggva á þann hnút sem upp er kominn.