157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

beiðni um sérfræðiaðstoð.

[16:35]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Hæstv. forseta er auðvitað ákveðin vorkunn að það skuli gerast ítrekað að nefndastörfin og einhver ágreiningur innan nefndanna berist ítrekað inn í þingsal. Þetta eru vinnubrögð og vinnulag sem við eigum ekki að venjast hér á Alþingi. Það virðist vera sem svo að formenn hv. nefnda, sem hafa valist til þeirra starfa, valdi hreinlega ekki því hlutverki sínu að vinna saman innan nefnda. Hv. formenn koma gjarnan hingað upp á tyllidögum þegar til umræðu eru mál sem ganga svona tiltölulega snurðulaust fyrir sig og hreykja sér af því að það sé svo ánægjulegt að allir geti unnið saman þegar allir koma saman í þinginu. En við minnsta tilefni er neitunarvaldi beitt og minni hlutinn er hreinlega beittur ofríki. Hér er þetta síendurtekna stef, að hæstv. forseti þurfi að una við það að þingsalurinn sé uppfullur af athugasemdum varðandi þessi nefndastörf, þannig að ég vil hvetja hæstv. forseta til að stíga inn með mjög afgerandi hætti.