157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

beiðni um sérfræðiaðstoð.

[16:36]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Mig langar að byrja á að svara hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur sem spurði við hvað við værum hrædd. Við erum ekki hrædd við neitt í þessu lögfræðiáliti. Við erum hins vegar hrædd við að um 200 strandveiðisjómenn komist ekki á sjó og … (Gripið fram í: Grásleppusjómenn …) — Fyrirgefðu, grásleppusjómenn, afsakaðu mig. Og … (Gripið fram í.) — Mig langar að biðja um að þingmaðurinn hætti þessu gjammi, framíköllum fyrir mér. — Við erum ekkert hrædd við það. Það eina sem við óttumst er að framsal á þessum kvóta hefjist með haustinu, það er það sem við óttumst. Hér var sett slæm löggjöf, þingmannamál, fyrir tveimur árum. Við erum að reyna að vinda ofan af henni og það er full þörf á því. Ég vísa til föðurhúsanna ummælum formanns Sjálfstæðisflokksins um að við í meiri hlutanum séum að berjast fyrir sérhagsmunum þegar þarna er verið að berjast fyrir útgerðum. Í rauninni eru fimm bátar sem stóðu út af í þessu frumvarpi og það er búið að laga það, þeir fá að vera með. Annars vegar er verið að berjast fyrir sérhagsmunum þeirra sem fengu kvóta eða þá fyrir sjómenn úti um allt land, mun fleiri. Þannig að ég bara spyr: Hver er að berjast fyrir sérhagsmunum? Það erum ekki við. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)