157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

beiðni um sérfræðiaðstoð.

[16:38]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Herra forseti. Það eina rétta í stöðunni er náttúrlega að forseti fari í málið og skoði þetta með tillögu til þessara títtnefndu 62. gr. Það er hins vegar áhugavert með mál, sem koma hér ítrekað upp og við kynntumst þessu mjög síðastliðið vor, sem koma úr atvinnuveganefnd, hvað það virðast vera mikil vandamál með þau. Þau fá oft einhverja flýtiskírn. Þetta mál kom fram í nefndinni í nóvember, skilst mér (Gripið fram í: Október.) — október, enn þá frekar. Það hefur verið mikill tími í vetur til að klára málið en svo bara kemur það inn hérna, einn, tveir og þrír. Hvaða flýtir er þetta? Af hverju er ekki búið að nýta tímann? Mér er farið að finnast þetta minna svolítið á þegar sá sem hér stendur sat síðastliðið vor í hv. atvinnuveganefnd og það var ekki í lagi með vinnubrögðin oft á tíðum. Nú finnst mér þetta mál vera farið að líkjast því mjög og þeirri stöðu sem var í atvinnuveganefnd (Forseti hringir.) síðastliðið vor. Ég hvet hæstv. forseta til að skerast í leikinn og skoða þetta mál strax.