157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

beiðni um sérfræðiaðstoð.

[16:39]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Herra forseti. Í hvaða hnút erum við komin? Jú, þetta er vegna þingmannafrumvarps um að færa grásleppu aftur til baka úr aflamarkskerfinu yfir í gamla dagakerfið, sem er, herra forseti, stefnumarkandi hvað fiskveiðistjórnarkerfið varðar og varðar mikilvæga atvinnuhagsmuni fjöldamargra manna. Ríkisstjórnin lætur það sem sagt viðgangast að hv. þingmaður Flokks fólksins rífi upp úr skjóðu sinni frumvarp sem gengur út á það að breyta veiðistjórn grásleppu. Það er mjög eðlilegt í slíkum tilvikum að af hálfu nefndarinnar sé leitað álits helstu lögspekinga á því hvaða áhrif þetta geti haft á ríkissjóð, t.d. hugsanlegir (Forseti hringir.) árekstrar við stjórnarskrá, hugsanlegar bótakröfur. Það er bara eðlileg krafa og auðvitað verður forseti að skera úr um þessa kröfu hér eins og var búið að óska eftir. (Forseti hringir.) Í nefndinni er málið unnið, herra forseti, með öfugum afturklónum.