beiðni um sérfræðiaðstoð.
Virðulegur forseti. Ég kem hér undir fundarstjórn forseta, þeim lið, en verð samt sem áður að tala jákvætt um fundarstjórn forseta. Ég held að fundarstjórn forseta hafi bara verið býsna góð við þær aðstæður sem uppi eru núna. Það er töluvert mikið rætt núna um þennan lið og það mál sem er síðar á dagskrá í dag sem er mál sem er náttúrlega bara í 2. umræðu í þingsal. Þetta er mál sem er ekki búið í 2. umræðu, á eftir að klára 2. umræðu hér, og það eru auðvitað þeir ferlar sem við þurfum að fylgja. Við þurfum að fylgja þeim ferlum að málin fái málefnalega umræðu í þingsal. Ég hvet þingheim til þess að leyfa lýðræðinu að eiga sinn gang hér og ég hvet hv. þingmenn til að ræða málið í 2. umræðu en leyfa öðrum málum sem eru á dagskrá að klárast (Forseti hringir.) þannig að það sé hægt að vinna þetta almennilega.