157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

beiðni um sérfræðiaðstoð.

[16:44]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Herra forseti. Það var ákveðin reynsla að taka við formennsku í atvinnuveganefndinni á sínum tíma. Maður tók auðmjúkur við leiðbeiningum frá reyndum þingmönnum sem gerðu athugasemdir hvað eftir annað. En þegar ég lít til baka og horfi á hlutina og sé að einn reyndasti þingmaðurinn á þessu þjóðþingi hefur tekið við formennsku, og hún er ekki þekkt af öðru en vönduðum vinnubrögðum, þá virðast þetta allt enn þá vera einhver handarbakavinnubrögð ef mark má taka á ræðum stjórnarandstöðunnar. Auðvitað snýst þetta ekki um vinnubrögðin, þetta snýst um pólitíkina. Mér finnst það kannski vera málið í þessu. Og áður en lengra er haldið þá tel ég að stjórnarandstæðingar ættu að fara yfir það hvað þetta kerfi var gott í vor þegar við reyndum hér að fara í aflamarkskerfi grásleppu. Þetta er lélegasta vertíð (Forseti hringir.) sem verið hefur síðan menn hófu hér veiðar á grásleppu. Þetta er eitthvað sem ómögulegt er að hreyfa við, (Forseti hringir.) og að tryggja hér atvinnufrelsi. Menn koma í heilagri reiði hér undir fundarstjórn forseta. Mér finnst þetta skrýtið.