beiðni um sérfræðiaðstoð.
Herra forseti. Varðandi Hafró þá var ráðgjöf Hafró bara upp á þessa veiði, þannig að það er verið að veiða miðað við þá veiðiráðgjöf sem kom þaðan, svo því sé haldið til haga. Það hefur reyndar oft verið þannig í umræðu í atvinnuveganefnd og kannski hér í þingsal að fyrrum formaður atvinnuveganefndar hefur svolítið haft horn í síðu Hafrannsóknastofnunar, en það er svo sem annað mál. Ég vil hins vegar aftur hvetja til vandaðra og agaðra vinnubragða í þingnefndum. Að mínu mati væri bara áhugavert í þessu máli að skoða feril þess og samhengi hlutanna. Hv. þm. Karl Gauti Hjaltason benti á bótaskyldu. Það er mikilvægt þegar lög eru sett og unnið er að löggjöf að hún sé vel unnin þannig að ekki verði til bótaskylda eða annað óhagræði af slíkri löggjöf. Ég hvet hæstv. forseta til að ganga til málsins og klára sinn úrskurð sem fyrst og stöðva þennan þingfund og fá það fram.