niðurstaða vegna umræðu um veiðistjórn grásleppu.
Virðulegur forseti. Því skal haldið til haga í þessari umræðu að nánast á sama tíma og þessi beiðni okkar kom fram á fundi nefndarinnar, rökstudd, um álit Lagastofnunar og hún fór til nefndasviðs þá upplýstum við forseta og forsætisnefnd um málið. Þannig að í hartnær tvær vikur hefur virðulegum forseta og forsætisnefnd verið kunnugt um þetta mál. Ef ég skil rétt hefur þetta eitthvað borið á góma þar og menn hafa talið að þetta væri bara svona í umræðu, í einhverju ferli. Það skín svo í gegn, virðulegur forseti, hversu gríðarlega óeðlileg þessi vinnubrögð eru gagnvart okkur í minni hlutanum. Við teljum bara að málið sé í einhverju ferli samkvæmt rökstuddri beiðni okkar, sem byggir sérstaklega á upplýsingum (Forseti hringir.) og athugasemdum sem komu fram frá skrifstofustjóra atvinnuvegaráðuneytisins um þessa málsmeðferð, og svo fáum við það bara í andlitið að málið sé komið á dagskrá og það á að hunsa (Forseti hringir.) þessa beiðni. Meiri hlutinn ákveður að draga fyrri ákvörðun nefndarinnar til baka. (Forseti hringir.)
Virðulegur forseti. Við getum ekki fundað áfram meðan vinnubrögðin eru svona á hinu háa Alþingi.