niðurstaða vegna umræðu um veiðistjórn grásleppu.
Virðulegi forseti. Það er nú gleði í mínu hjarta að heyra frá því að loksins sé komið að því að verið sé að skoða beiðni okkar úr minni hlutanum í atvinnuveganefnd. Þegar vel er gert þá er, held ég, ákveðin kurteisi sömuleiðis að þakka fyrir það. En ég vænti þess líka að það verði þá unnið hratt og vel úr þeirri beiðni, að við verðum ekki dregin hér fram eftir öllu kvöldi eða þangað til kemur að því að sá dagskrárliður sem um ræðir, sem fjallar um veiðistjórn innan fiskveiðilandhelgi Íslands, verði kominn á dagskrá. Því væri mjög æskilegt að innan skamms fengjum við atbeina um hvernig gengur að meta beiðni okkar ef hún er, eins og ég skildi hæstv. forseta, komin til vinnslu.