157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

úrskurður forseta.

[17:55]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Undir störfum þingsins og fundarstjórn forseta á 71. þingfundi fyrr í dag óskaði Bergþór Ólason, nefndarmaður í atvinnuveganefnd, fyrir hönd minni hluta nefndarinnar eftir úrskurði forseta með vísan til 62. gr. starfsreglna fastanefnda Alþingis „er varðar það að ekki hafi verið brugðist með forsvaranlegum hætti við beiðni […] um sérfræðiaðstoð.“ Þar kom einnig fram ósk um að forseti hlutist til um að aflað verði framangreinds sérfræðiálits o.fl.

Í kjölfarið beindi minni hluti atvinnuveganefndar beiðni til forseta, með tölvupósti, þar sem eftirfarandi kom m.a. fram: „Með vísan í 62. grein starfsreglna fastanefnda Alþingis, skýtur minnihluti atvinnuveganefndar hér með málinu til forseta til úrskurðar, enda ljóst að ósk okkar um sérfræðiaðstoð hefur verið ranglega hafnað.”

Tilefnið er að á fundi atvinnuveganefndar hinn 3. febrúar sl. kom fram beiðni frá minni hluta atvinnuveganefndar um að fengið yrði lögfræðiálit frá Lagastofnun Háskóla Íslands um 153. mál, Veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða (veiðistjórn grásleppu), sem var samþykkt með hjásetu meiri hlutans. Á fundi atvinnuveganefndar fyrr í dag lagði Lilja Rafney Magnúsdóttir, formaður nefndarinnar, til að sú beiðni yrði dregin til baka og var það samþykkt af meiri hluta nefndarinnar. Minni hlutinn mótmælti því með sérstakri bókun.

Samkvæmt 5. mgr. 8. gr. laga nr. 55/1991, um þingsköp Alþingis, sbr. 1. gr. laga nr. 85/2012, getur nefnd „leitað úrskurðar forseta um skilning eða framkvæmd reglna sem settar hafa verið um störf nefnda.“ Málskotsheimild 62. gr. starfsreglna fastanefnda Alþingis ber að skýra til samræmis við framangreindar heimildir forseta Alþingis til afskipta af störfum þingnefnda.

Í þeim úrskurðum sem fyrir liggja um heimildir forseta til afskipta af störfum þingnefnda, samanber t.d. úrskurð forseta Alþingis 15. júní 2020 sem laut að lokum frumkvæðisathugana þingnefnda, og úrskurð forseta frá 31. janúar 2023 sem laut að ósk um lögfræðiálit og varðaði jafnframt túlkun á 62. gr. starfsreglna fastanefnda, hefur verið lögð áhersla á að þingnefndir séu sjálfstæðar í störfum sínum og njóti sjálfræðis. Í skýringum við 1. gr. frumvarps þess sem varð að 1. gr. laga nr. 85/2012, um breytingu á 8. gr. þingskapa, kemur fram að ekki sé „ætlunin né hefur það verið venja við framkvæmd greinarinnar að gera forseta að áfrýjunardómi um ágreining sem kann að koma upp í nefndum“. Samkvæmt þessu hefur verið litið svo á að forseta sé ætlað að hafa eftirlit með því að fylgt sé reglum þingskapa og almennum reglum um fundarsköp nefnda, þar með talið um boðun funda, dagskrá og ritun fundargerða. Forseti hafi samkvæmt þessu ekki afskipti af hinni efnislegu umfjöllun nefndar, en þar á meðal er hvernig þingnefnd hefur afmarkað athugun sína eða einstaka efnisþætti máls sem hún hefur til umfjöllunar.

Heimild 62. gr. starfsreglna fastanefnda Alþingis verður, með vísan til framangreinds, ekki skýrð svo að hún gangi lengra en felst í afskiptum forseta Alþingis af störfum fastanefnda skv. 5. mgr. 8. gr. þingskapa Alþingis.

Samkvæmt framansögðu er það niðurstaða forseta að skýra ber 62. gr. starfsreglna fastanefnda í samræmi við fyrri framkvæmd. Hún felur ekki í sér heimild forseta Alþingis til afskipta af ákvörðun fastanefndar um það hvort nýta beri heimild 60. gr. starfsreglnanna um aðkeypta sérfræðiaðstoð. Þá hefur ekkert komið fram í málinu um að ákvörðun atvinnuveganefndar frá 17. febrúar hafi verið tekin í andstöðu við þingsköp eða starfsreglur fastanefnda. Af þessari niðurstöðu leiðir að forseti tekur ekki til umfjöllunar aðra þætti beiðninnar.