157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

úrskurður forseta.

[18:11]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Frú forseti. Ég verð nú að byrja á því að þakka forseta fyrir að hafa hlustað á minni hlutann í dag. En ég tek undir með öðrum sem hér hafa talað, ég er mjög hugsi yfir niðurstöðu forseta og tel að þetta geti haft afleiðingar sem við sjáum ekki alveg fyrir. Á löggjafanum hvílir sú skylda að leggja mat á það hvort lagasetning sem hér á sér stað samrýmist stjórnarskrá. Hér erum við t.d. að tala um að skerða atvinnuréttindi fólks og þar með er farið gegn stjórnarskrávörðum réttindum fólks.

Þetta mat varðandi lagasetninguna fer að jafnaði fram í ráðuneytum og í vissum tilfellum hér á Alþingi. En í þessu máli hefur þetta mat alls ekki átt sér stað. Þetta er þingmannamál eins og hér hefur margoft verið sagt í dag og þess vegna hefur það ekki farið í gegnum það ferli sem við teljum ákjósanlegt, í gegnum ráðuneytin. Við erum einfaldlega að óska eftir því að löggjafinn sinni þessari skyldu sinni að þetta mat sé framkvæmt, hvort þetta frumvarp, sem meiri hlutinn vill með offorsi koma hér í gegn, samrýmist mannréttindareglu stjórnarskrárinnar og meðalhófsreglunni. Ef allt væri eðlilegt og vinnubrögð meiri hlutans væru eðlileg lægi þetta mat fyrir.

Við erum að standa vörð um vandaða lagasetningu Alþingis. Ég segi það ekki nógu oft hér í dag og það er eitthvað sem við hljótum öll að geta sammælst um hér í þessum sal.