úrskurður forseta.
Virðulegi forseti. Ég vil eins og aðrir þingmenn þakka forseta fyrir hennar úrskurð í málinu sem hefði getað orðið þessi eða annar. En hér nefna hv. þingmenn þetta ákvæði í samspili við minnihlutavernd. Ég vil bara taka það fram að þetta mál hér er ekki mál sem varðar minnihlutavernd. Þessi beiðni var samþykkt á grundvelli 60. gr. um aðkeypta sérfræðiaðstoð og það er nefnd, þingnefnd í heild sinni, sem biður um slíkt álit. Þannig að þetta tiltekna ákvæði um aðkeypta utanaðkomandi sérfræðiaðstoð er ekki ákvæði sem varðar sérstaklega minnihlutavernd. Hefði þingnefndin upprunalega ákveðið að hafna beiðninni hefði málinu verið lokið þar með. Ég hef auðvitað almennt skilning á þeim sjónarmiðum að það sé gott að minni hlutinn hafi ríkulegar heimildir til að rýna verkefni meiri hlutans en þetta tiltekna ákvæði sem hér er nefnt varðar ekki minnihlutavernd og þess vegna er kannski óþarfi að grípa til þessara stóru orða um að hér hafi orðið einhver viðsnúningur á því grundvallarprinsippi því öll ákvæði í þingsköpum sem varða sannarlega minnihlutavernd eru auðvitað áfram eins og þau hafa verið.