úrskurður forseta.
Frú forseti. Ég vil eins og aðrir þingmenn þakka forseta þingsins fyrir að hafa kveðið upp þennan úrskurð. Ég held að það sé mikilvægt að við rýnum öll í efni hans og rökstuðning. Sjálfur óttast ég, og setti raunar að mér nokkurn óhug, að rökstuðningurinn sé þess efnis að það geti hreinlega aldrei reynt á þetta úrskurðarvald forseta sem er mjög mikilvægt, sérstaklega í málum eins og þessum. Það er stjórnskipuleg skylda okkar að gæta að því að löggjöfin samræmist stjórnarskránni. Þó að hér sé starfandi meiri hluti er auðvitað ekkert alræði meiri hlutans. Hann verður, eins og aðrar stofnanir samfélagsins, að fylgja þeim viðmiðum sem leiða af stjórnarskránni okkar. Út á það gekk þetta mál, eðlileg beiðni um að fá sérfræðinga við Lagastofnun Háskóla Íslands til að leggja mat á það hvort þetta frumvarp samræmist stjórnarskránni. Það er dapurlegt að horfa á það að meiri hlutinn vilji ekki vanda til verka með þeim hætti.