157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

úrskurður forseta.

[18:15]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hæstv. forseta fyrir að hafa lagst í þessa vinnu og kynnt þennan úrskurð hér. Það er áhugavert að hlusta á fulltrúa minni hlutans lýsa ótta sínum yfir þessum úrskurði þar sem vísað er í fordæmi sambærilegs úrskurðar frá síðasta kjörtímabili. Þá voru margir af þeim fulltrúum hinum megin við ganginn og fannst ekki erfitt að hafna beiðni minni hluta um lögfræðiálit frá Lagastofnun Háskóla Íslands eða að forseti þeirra hafi hafnað þeirri áfrýjun sem þá kom fram. En það er áhugavert að fá þetta fram. Þetta er líka ákveðinn spegill og lýsandi því að þegar byrjað er að kvarta undan slæmum vinnubrögðum, þegar við byrjum að ræða um að hér sé ekki vandað til verka, þá er það oftast í málum sem við erum ósammála um. Þetta er dæmi um slíkt mál. En það sem er jákvætt við þennan úrskurð er að nú hefur þessum spurningum verið svarað og við getum haldið áfram með þingstörfin og virt þá hefðbundnu þinglegu meðferð sem öll mál eiga að fara í gegnum, klárað þær atkvæðagreiðslur sem eru fram undan og hafið 2. umræðu.