157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

úrskurður forseta.

[18:18]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Eftir því sem ég íhuga betur úrskurð virðulegs forseta þá verður málið alvarlegra í huga mínum. Þetta er einhvers lags 71. gr. nefndarstarfsins, þessi úrskurður. Hér er verið að taka það verkfæri af borðinu sem þeir þingmenn sem telja beiðni sinni hafnað með óréttmætum hætti hafa haft, samkvæmt starfsreglum fastanefnda í 62. gr., til að skjóta því til úrskurðar virðulegs forseta. Úrskurðurinn eins og hann liggur fyrir núllar þetta út, gerir ákvæðið að markleysu. Staðan er sú að hvenær sem er getur meiri hluti nefndar, sem finnur sig í vandræðum með mál, ákveðið að afturkalla þegar samþykkta beiðni nefndar. Þetta er algerlega ómöguleg staða fyrir Alþingi, fyrir nefndir, fyrir meiri hluta nefnda, fyrir minni hluta nefnda því að á endanum skiptum við öll um hlutverk hér inni. Ég er eiginlega alveg miður mín að þetta sé niðurstaða virðulegs forseta þó að ég dragi ekki í efa að hún sé leidd fram með þeim hætti að forsvaranlegt sé að mati virðulegs forseta og ráðgjafa forseta. En áhrifin eru þau að í raun er hér verið að ramma inn einhvers lags 71. gr. nefndarstarfsins og það er mjög miður.