157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

erindi minni hluta atvinnuveganefndar.

[18:25]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Forseti bendir hv. þingmanni á að eins og öllum er kunnugt um er hægt að taka mál til nefndar á milli 2. og 3. umræðu og eins og hér hefur áður verið bent á getur minni hluti í nefnd óskaði eftir upplýsingum í krafti 51. gr. (BergÓ: … minni hlutans til forsætisnefndar?) Forseti þarf aðeins að hugsa það betur af því að það er ekki alveg á hreinu hvort slíkt erindi er tækt til afgreiðslu í forsætisnefnd. Ég bara bið hv. þingmann að sýna því skilning.