157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

erindi minni hluta atvinnuveganefndar.

[18:27]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegur forseti. Klukkan er orðin hálf sjö og við höfum komist hægt yfir í dagskránni en í ljósi umræðu hv. þm. Guðmundar Andra Sigurjónssonar vil ég segja að öll málin sem við höfum greitt atkvæði um í dag hafa verið í sátt og bara gengið ágætlega fyrir sig. Það sem þau mál hafa nú kannski átt sammerkt er að það eru mál frá ríkisstjórninni sem hafa fengið sinn feril í gegnum ríkisstjórn og ráðuneytin og svo hér í gegnum þingnefndina. En það er líka fullt af málum sem hafa áður farið hér í gegn í mikilli andstöðu en samt klárast af því að þau hafa fengið þinglega meðferð og þau gögn hafa legið fyrir þó að við höfum ekki verið málefnalega sátt við það. En málið sem við ræðum í dag er þingmannamál sem er ekki búið að fara í gegnum feril ráðuneytisins, frekar hefur ráðuneytið hvatt til þess að fengið væri lagalegt álit á málinu, og svo er því öllu saman hafnað. Það er því mjög mikil einföldun að koma hér upp og segja að aðeins mál sem andstaða er við lendi svona.(Forseti hringir.) Nei, það fer eftir vinnubrögðum meiri hlutans hvernig málin fara í gegn. Mál, hvort sem það er sátt um þau eða ekki, fara í gegn séu vinnubrögðin í lagi.