157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

erindi minni hluta atvinnuveganefndar.

[18:29]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Staðan verður eiginlega ómögulegri eftir því sem meira svigrúm gefst til að glöggva sig á þessum úrskurði. Með vísan í orð hv. þm. Sigríðar Andersen hér rétt áðan, um að þau mál sem vísað er til til rökstuðnings séu ekki sambærileg, þarf auðvitað að skoða þetta betur. Síðan er algjörlega nauðsynlegt að við séum ekki að búa til einhverjar bakdyraleiðir fyrir ríkisstjórn hvers tíma til að koma illa unnum málum hér í gegnum þingið. Það er nefnilega grundvallarmunur á stjórnarfrumvörpum og þingmannamálum. Það sem gerist með mál eins og það sem hér er til umfjöllunar, og er umdeilt, er allt önnur nálgun á lagalegan grundvöll málsins en ef um stjórnarfrumvarp væri að ræða. Enn sem komið er hafa fulltrúar í minni hluta atvinnuveganefndar ekki fengið að vita hver var til lögfræðilegrar ráðgjafar um málið. Það gæti allt eins verið einhver sem mætti í vöfflukaffi í Fjörgyn í Grafarvogi hér fyrir einhverjum vikum síðan; það eina sem við vitum er að það eru ekki lögmenn frá Alþingi. Ég bið virðulegan forseta að íhuga það að búa ekki til einhverja bakdyraleið fyrir illa unnin lagafrumvörp sem ríkisstjórn hvers tíma gerir, í hrossakaupum sínum, með einum eða öðrum hætti að sínu.