meðferð máls og úrskurður forseta.
Virðulegi forseti. Ég gríp nú niður í ræðu hv. þm. Jens Garðars Helgasonar sem velti því fyrir sér hvernig mál eru unnin og þá flaug mér í hug frétt sem var í gær um jarðgangaframkvæmdir og forgangsröðun sem virðist nú frekar vera orðin byggð á tilfinningu eða draumsýn ráðherra um það hvernig hann vilji sjá hlutina heldur en þeim staðreyndum sem lágu á borðinu. En, virðulegi forseti, við erum jú komin á þann stað að nú liggur fyrir að sú leið sem við í minni hluta atvinnuveganefndar höfum er að óska eftir því við atvinnuvegaráðuneytið að meta stöðuna, fara yfir málið. Við í minni hlutanum erum búin að forma ákveðnar spurningar sem er búið að senda á atvinnuveganefnd og forsætisnefnd og væntanlega verður þeim komið í framhaldinu upp í atvinnuvegaráðuneytið, þá getum við leitað einhverra svara. Hæstv. forseti kvað upp úrskurð hér áðan og við unum honum þó að við höfum eitthvað um hann segja. En ef þetta er niðurstaðan þá þurfum við bara að spila eftir þeim leikreglum sem hér eru.