157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

meðferð máls og úrskurður forseta.

[18:52]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Já, það er með áframhaldandi ólíkindum að verða vitni að þessu í dag og hvernig þetta hefur þróast og æxlast og hversu ómálefnaleg viðbrögðin eru. Það er hægt að taka undir það að það er bara verið að knýja í gegn mál, sem einkum koma frá tilteknum stjórnmálaflokki ríkisstjórnarsamstarfsins, Flokki fólksins, sama hvað. Sama hvað það kostar og sama hvernig það er gert. Þetta er bara að fara í gegn og ekki hlustað á óskir eða orðið við óskum um álit eða aðrar umsagnir. Við höfum bent á það í dag að í fyrramálið er fundur hv. velferðarnefndar þar sem frumvarp um breytingu á lögum um almannatryggingar er til umfjöllunar og það hefur verið gríðarlega mikill þungi lagður í það að fá frekari umsagnir um það frumvarp frá fjármálaráðuneytinu, frá Seðlabankanum og frá virtum hagfræðingum sem hafa tjáð sig um frumvarpið. (Forseti hringir.) Þetta frumvarp hefur fengið gríðarlega mikil viðbrögð og augljóst að það veldur miklum áhyggjum. (Forseti hringir.) Ég hef ekki meiri tíma, ég bið um að verða sett aftur á mælendaskrá.