157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

meðferð máls og úrskurður forseta.

[19:02]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Við værum ekki hér í þessari umræðu undir fundarstjórn forseta að kvarta yfir vinnulagi Alþingis ef meiri hlutinn hefði unnið þetta mál vel. Ef allt væri eðlilegt og vinnubrögð meiri hlutans væru forsvaranleg þá lægi fyrir mat um áhrif þessa máls. Meiri hlutinn hefði getað látið sérfræðinga ráðuneytisins, eða utan þingsins eða utanaðkomandi sérfræðinga, vinna slíkt mat. Það hefur meiri hlutinn ekki gert og það ætlar meiri hlutinn greinilega ekki að gera. Við erum að standa vörð um skyldu Alþingis til vandaðrar lagasetningar og það er miður að við þurfum að heyja sérstaka baráttu fyrir virðingu þingsins við stjórnarmeirihlutann. Áðan var nefnt frumvarp um launavísitöluna sem við höfum rætt líka oft (Forseti hringir.) og ég hef gagnrýnt. Ég hef sérstaklega gagnrýnt vinnubrögðin. (Forseti hringir.) Enn og aftur sýnir meiri hlutinn og ríkisstjórnin sitt rétta andlit. Það hefur enginn vit á neinu nema þau.