meðferð máls og úrskurður forseta.
Frú forseti. Í ljósi þess sem haldið hefur verið fram hér um aðdraganda þessarar ákvörðunar meiri hluta atvinnuveganefndar í morgun langar mig að halda því til haga varðandi sjónarmið flutningsmanns málsins og formanns nefndarinnar, sem heldur því fram að minni hlutinn hafi verið að óska eftir frekari gestakomum eftir að fulltrúi ráðuneytisins hafði mætt fyrir nefndina, að minn skilningur er sá, og ég hef ekki fengið hann leiðréttan með neinum hætti hjá þeim sem sátu fundi þar sem um þetta var rætt og samið, að það hafi ekki verið rammað inn með neinum hætti að það kæmi einn gestur, einn einstaklingur raunar, á fund atvinnuveganefndar eftir að málið var tekið inn til nefndar innan 2. umræðu. Þetta er partur af þeirri mynd sem hefur teiknast upp hvað málið varðar. Það er mikið um eftiráskýringar í málinu (Forseti hringir.) en verst er að mestu eftiráskýringarnar verða væntanlega settar fram fyrir dómi innan ekki langs tíma ef fram heldur sem horfir.