157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

meðferð máls og úrskurður forseta.

[19:08]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Frú forseti. Ég vil taka undir með kollegum mínum hér með vinnubrögðin í þinginu og gott að heyra að hv. þm. Sigurjón Þórðarson gerir það líka, hvort sem það er í hæðni eða ekki. Það er hans. Menn skrifa sína sögu sjálfir og það gerir hv. þingmaður flissandi úti í sal. Það er dapurlegt. Það er virkilega dapurlegt.

Frú forseti. Hér er mál sem ekki er vel unnið komið inn í þingið, þingmannamál sem þarf miklu betri yfirlegu og gestir þurfa að geta komið fyrir nefndina. Ég segi það í einlægni, frú forseti, (Forseti hringir.) að það væri ákveðin háttvísi fólgin í því að ákveðnir þingmenn væru ekki flissandi úti í sal en sumum er kannski ekki viðbjargandi.