157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

spurningar til ráðuneytis og frumvarp um almannatryggingar.

[19:30]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf):

Virðulegur forseti. Það skortir ekki dramatíkina í ræður minni hlutans í þessari fundarstjórn. Líkt og allir þingmenn hér inni vita, þegar stefnt er að afgreiðslu máls er það sent í tölvupósti en það hvernig fundir framtíðarinnar fara — við getum ekki farið djúpt í það í þessari fundarstjórn, ekki nema það sé nýjasti tafaleikur minni hlutans að fara að spá fyrir um hugsanlegar niðurstöður framtíðarfunda. Ég hef miklar væntingar um að velferðarnefnd muni vinna vel úr þessu máli á morgun. Ég fagna því sem ráðherra kom inn á hér, hann leiðrétti ákveðinn misskilning. Ég bind vonir við það að við getum sett þessa tafaleiki fyrir aftan okkur og klárað þá dagskrá sem liggur fyrir fundinum.