157. löggjafarþing — 71. fundur,  17. feb. 2026.

spurningar til ráðuneytis og frumvarp um almannatryggingar.

[19:31]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Það er í anda þessarar ómálefnalegu málsmeðferðar allra mála frá Flokki fólksins að hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra úr Flokki fólksins komi hingað í ræðustól Alþingis og væni alla þá sem hafa gagnrýnt þetta launavísitölufrumvarp, alla, um að hafa hvorki hingað til né, að hann heldur, nokkurn tímann tekið upp málstað eða kjarabaráttu öryrkja eða eldri borgara.

Virðulegur forseti. Mér blöskrar þessi málflutningur hæstv. ráðherra í garð allra þeirra sem hafa talað um þetta mál og get upplýst hæstv. ráðherra um það að sú sem hér stendur og örugglega flestir þeir sem hafa gagnrýnt þetta mál hafa tekið upp málstað öryrkja og eldri borgara mun lengur heldur en hæstv. ráðherra hefur gert í opinberri umræðu og frábið mér þennan málflutning. Ég hefði óskað þess að hann svaraði því hvort hann fagnaði því ekki að hv. velferðarnefnd fjallaði um málið málefnalega og tæki til umræðu þær breytingartillögur (Forseti hringir.) sem okkur voru sendar hérna fyrir tíu mínútum síðan, með því að fá gesti á fund nefndarinnar.