157. löggjafarþing — 72. fundur,  18. feb. 2026.

Frestun á skriflegum svörum.

[15:00]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Borist hefur bréf frá heilbrigðisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 654, um augasteinsaðgerðir og samninga við einkarekna þjónustuaðila, frá Ingibjörgu Isaksen. Einnig hefur borist bréf frá mennta- og barnamálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 662, um niðurstöður og þátttöku sveitarfélaga í lestrarskimunum, gögn um lestrarfærni og mat á árangri íhlutunar, frá Ingibjörgu Isaksen.