157. löggjafarþing — 72. fundur,  18. feb. 2026.

afsökunarbeiðni þingmanns.

[15:02]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Eins og við þekkjum öll getur hitnað í kolunum hér í þingsal þegar umræður verða heitar. Það gerðist svo sannarlega í gær. Mér hitnaði í hamsi að gefnu tilefni og viðhafði hér orð í þingsal sem eru ekki boðleg að fari fram í þessum þingsal eða úr þessum ræðustól og beindi þeim til ráðherra. Ég vil biðjast velvirðingar á því gagnvart þinginu og gagnvart hæstv. ráðherra sem ég beindi orðum mínum til.