157. löggjafarþing — 72. fundur,  18. feb. 2026.

þekkingarmiðuð aðalnámskrá.

439. mál
[16:28]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Enn þakka ég hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir að koma með þessa umræðu og þessar spurningar. Ég get eiginlega tekið undir hvert einasta orð. Ég get glatt hv. þingmann með því að það er verið að endurskoða aðalnámskrá og það hefur staðið yfir markvisst undanfarin ár. Við eigum líka að finna þau börn sem þurfa meiri áskoranir. Já, við höfum verið að færa okkur í þá átt að gera námskrána meira þekkingarmiðaða og aðeins frá hæfniviðmiðunum. En ástæðan er einföld; of lengi var námskráin of almenn og of óskýr og gaf kennurum ekki nægilega skýra leiðsögn um hvað börn eigi raunverulega að kunna á hverju stigi, eins og hv. þingmaður bendir réttilega á. Það er ekki sanngjarnt gagnvart kennurum og alls ekki gagnvart börnunum sjálfum.

Skýrsla ráðuneytisins frá 2021, sem hv. þingmaður vísar í, sýndi svart á hvítu að skýra þurfi markmið, hæfniviðmið og ábyrgð. Í kjölfarið hófst heildstæð endurskoðun á greinasviðum námskrárinnar árið 2022 og í nóvember 2024 voru síðan gefin út skýrari hæfniviðmið sem tóku gildi haustið 2025. Samhliða þessari endurskoðun voru gefin út dæmi um námsmarkmið sem styðja við skipulag kennslu og skýra framvindu í námi nemenda. Við erum að færa námskrána frá óljósum yfirlýsingum yfir í skýrari kröfur um þekkingu, leikni og hæfni. Í framhaldinu hefur verið gefið út stuðningsefni um skipulagningu náms, kennslu og námsmats. Efnið styður við þau vinnubrögð sem einkenna gæðakennslu og eru nú í innleiðingarferli í fjölmörgum grunnskólum.

Ég legg áherslu á að skólakerfið byggi á traustum þekkingargrunni. Börn þurfa að vita hvað þau eiga að læra. Kennarar þurfa að vita hvað þeim ber að kenna og hvernig þeir leiðbeina nemendum í náminu. Foreldrar þurfa að geta fylgst með raunverulegri framvindu barna sinna. Þetta er kjarninn í gæðaskólastarfi og þessi vinna markar ákveðin tímamót. Hún samræmist þróun sem við sjáum í nágrannalöndunum, fyrir utan Finnland, þar sem verið er að skerpa á námskrám og gera þær skýrari og markvissari. Þessu er ekki lokið; endurskoðun, umbætur og stuðningur við skólana eru stöðugt verkefni og endurskoðun námskrár verður því seint lokið á einum tímapunkti.

Við ætlum að halda áfram að styrkja námskrána okkar. Við ætlum að einfalda hana þar sem þarf að tryggja að hún styðji við menntun fyrir alla þar sem kröfur eru skýrar, markmiðin mælanleg og ábyrgð skóla er skýr. Þannig að ég segi: Hv. þingmaður, ég vil ekki hafa það að þetta sé það háfleygt að enginn viti hvernig á að koma því raunverulega til skila til nemenda sinna. Strax og ég kom inn í ráðuneytið var ég nú eiginlega að hugsa um að hreinlega stokka upp aðalnámskrána alveg frá rótum. Það er enn annað verkefni sem ég sé að við hv. þingmaður erum að deila hér heila hvað það varðar. En hann veit mun betur en ég hvernig við eigum að nálgast verkefnið þannig að vel sé. Það er bara ömurlegt að heyra, sem ég vissi ekki, að um 2010 hafi Finnar tekið upp eitthvað til að elta okkur með okkar áfellisdóm sem hv. þingmaður er náttúrlega með og fylgir líka í þessari skýrslu sem vísað er í. Við slíkt má eigi lengur una, það liggur algerlega fyrir.

Við munum gera hvað sem er til að gera kerfið okkar betra. Ég þori að segja hvað sem er við hvern sem er til að standa í lappirnar til að gera kerfið okkar betra. Það eina sem ég er að gera hér með því að vera menntamálaráðherra er að styðja við menntun barnanna okkar, veita þeim jafna stöðu um allt land. Það er algjört skipulagt kaos á milli skóla. Sumir skólar eru kallaðir bónusskólar. Hvað þýðir það? Jú, þeir eru að útskrifa nemendur sína með óeðlilega háar einkunnir til að hjálpa þeim að komast inn í framhaldsskóla. Hugsið ykkur. Svo þegar barnið, ungmennið, kemur inn í framhaldsskólann þá keyrir það bara á vegg. Er þetta greiði við einstaklinginn? Er það greiði við börnin okkar að vera afburðanemandi með yfir níu í meðaleinkunn og koma svo upp í framhaldsskóla og falla strax vegna þess að þegar betur er að gáð þá var þetta fölsk einkunn? Þetta er falskur mælikvarði á getu einstaklingsins. Það er verið að blekkja börnin okkar, það er verið að hafa þau að fíflum. Við erum að tala um framtíð þeirra. Tækifæri þeirra til framtíðar er menntakerfið okkar og við þurfum að styðja það. Við þurfum að styrkja það. Það er fyrir börnin fyrst og síðast. Þau eru framtíðin. (Gripið fram í: Heyr, heyr. )