157. löggjafarþing — 72. fundur,  18. feb. 2026.

þekkingarmiðuð aðalnámskrá.

439. mál
[16:38]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Forseti. Ég þakka enn og aftur fyrir þessa góðu umræðu. Þetta er einstaklega mikilvægt í þeim verkum sem við erum að vinna í farsæld fyrir börnin okkar og framtíð þeirra. Ég var nú það gróf til að byrja með að ég var ákveðin í að setja Kveikjum neistann inn í aðalnámskrá og setja það út í alla skóla úti um allt land af því að það hafði náðst frábær árangur í skólanum í Vestmannaeyjum, fimm ára reynsla af neistanum þar, annað árið er núna í Lindaskóla og það er bara alveg ótrúleg framför og mikil gleði. Þar er aðallega verið að byggja á hreyfingu, gleði, lestri og bara vellíðan barnanna okkar og þar er svona gæðastund, sem er nú vinsælasta stundin, þar sem börnin fá í rauninni að velja næstum því hvað sem er, hvort heldur sem er að baka köku eða gera eitthvað skemmtilegt, og það er nú vinsælasta fagið. Það er of lítið um það að við nálgumst einstaklinginn, litla einstaklinginn, þar sem hann er, það er bara allt of lítið um það. Okkur hefur hætt til þess að setja börnin okkar í eitt og sama boxið og láta eins og eitt og hið sama eigi að gilda um alla. Það er ekki rétt. Við viljum ekki sjá það. Við viljum mæta barninu þar sem það er.

Ég ætla að svara hv. þm. Snorra Mássyni sem er alveg æstur í samræmd próf og vildi fá mig til að svara hvað ég ætlaði að gera í þeim efnum. Það er varla sá fundur sem ég á með hagaðilum þar sem ekki er talað um samræmd próf og hvernig það sé, hvort við eigum ekki að koma þeim á, en ég verð að segja að ég hrökk svolítið við að einu leyti. Ég veit ekki betur en að tæknin hafi hlaupið með einhvern þarþarþarsíðasta menntamálaráðherra algerlega út í skurð, tæknin var ekki einu sinni til staðar til þess að skila frá sér samræmdum prófum sem voru tekin á sama tíma út um allt land, það bara sprakk allt kerfið. Við byrjum á því að laga kerfið þannig að við getum þá raunverulega komið með samræmd próf í 10. bekk a.m.k. á sama tíma um allt land. Það er ekki mér á móti skapi. Ég er til í að taka umræðuna og það eru allir meira og minna sem nefna það. En ég segi bara: Áfram veginn. Við þurfum að gera betur og við ætlum að gera það.