157. löggjafarþing — 72. fundur,  18. feb. 2026.

afburðanemendur.

440. mál
[16:44]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Aftur þakka ég hv. þingmanni fyrir að koma með þessa góðu fyrirspurn. Ég get alveg fullvissað hv. þingmann um að ég er ein eyru og hlusta mjög vel. Það er grafalvarleg mynd sem hefur teiknast hér upp. Því verður ekki á móti mælt. Ef við ætlum að fjölga nemendum á efstu þrepum PISA þá verðum við einfaldlega að horfast í augu við þann vanda. Það er nefnilega ekki bara þannig að við séum að skora of lágt í PISA, lægra en flestar samanburðarþjóðir okkar, heldur er hlutfall íslenskra nemenda sem býr yfir afburðahæfni samkvæmt PISA einnig mun lakara, eins og hv. þingmaður réttilega bendir á, á Íslandi en á hinum Norðurlöndunum, eða yfirleitt hjá hinum OECD-ríkjunum. Það að eiga afburðanemendur er ekki síður mikilvægt, ekki síst í fámennu ríki eins og okkar.

Hvað þarf að gera til að breyta þessu? Ég vil náttúrlega byrja á því að vísa til þeirra stöðu- og framvinduprófa sem nú verða tekin í notkun. Þetta eru ný próf. Þetta er matsferillinn sem er fyrst og fremst verkfæri fyrir kennara og foreldra, verkfæri sem hefur lengi vantað í íslensku skólakerfi. En nú ætla ég bara að hætta með afburðabörnin og hætta að tala út frá rituðu ræðunni og tala út frá mér. Staðreyndin er sú að eins og staðan er í skólakerfinu í dag þá geta afburðanemendur almennt alls ekki fengið að blómstra. Það eru engar þær aðstæður í allt of mörgum skólum sem bjóða afburðanemendum upp á það að blómstra. Í skólabekk þar sem einn kennari er með á bilinu 24–30 börn þar sem eru töluð sex til tíu, tólf tungumál — hvernig í ósköpunum á nokkur að geta ímyndað sér að það sé hægt að ná einhverjum vitrænum árangri út úr þeim aðstæðum? Fyrir utan það að okkur skortir fleiri kennara. Við viljum efla kennaranám, við viljum fá fleiri fagaðila. Við viljum auka við STEM-greinarnar, það er skortur á fagkennurum, í ákveðnum fagstéttum, í kennarastöðunum.

Það sem við erum að gera núna er að við erum að draga öll börnin langt niður fyrir meðaltal. Og ekki bara það, ég veit um kennara sem stendur bara með Google translate við hliðina á tíu ára nemanda sem er að læra náttúrufræði á íslensku, nemanda sem talar hvorki ensku né íslensku, og kennarinn er að reyna að gera sitt besta með því að gúgla hvernig hann á að kenna þessu barni á meðan öll hin börnin eru þarna inni í skólastofunni. Þessi kennari, hann bara bugast fljótt. Við missum frá okkur fagfólkið okkar. Við erum í rauninni ekki að búa kennarastéttina það góðum verkfærum að henni líði vel. Nýútskrifaðir kennarar bara næstum því bugast á fyrsta ári ef þeir lenda í þessari aðstöðu sem ég hef hér lýst.

En ég segi við hv. þingmann að sem betur fer eru ekki alls staðar þessar myndir að raungerast, sem betur fer eigum við aðstæður í menntakerfinu þar sem vel gengur og við verðum að lyfta því í stað þess að draga allt niður. Staðreyndin er sú að við verðum bara að horfast í augu við verkefnin, við áskoranirnar og raunverulega taka á þeim með foreldrunum, með kennurunum. Við verðum að styðja þá. Það gengur ekki upp, við getum ekki ætlast til þess að nokkur maður starfi í þeim starfsaðstæðum sem allt of mörgum kennurum okkar eru búnar í dag. Það liggur alveg fyrir. Þess vegna hef ég margítrekað sagt að svokallaður skóli án aðgreiningar er barn síns tíma. Skóli án aðgreiningar er algjörlega barn síns tíma. Við erum ekki að tala um að taka fötluð börn og börn sem eru með einhverjar fatlanir út úr skólanum, út úr bekknum sínum og jaðarsetja þau einhvers staðar annars staðar. Nei, við erum að tala um að koma til móts við börnin sem eru raunverulega jaðarsett inni í skólastofunni, sitja þarna bara og vita ekkert um hvað er verið að ræða í kennslustofunni. Við erum að tala um að bjóða börnunum okkar upp á það að fara á annan stað, fara í aðra skólastofu þar sem eingöngu verður kennd íslenska, þar sem eingöngu er tónlist, þar sem er hreyfing og þar sem þau hitta skólafélagana í frímínútum. Við þurfum ekki að finna upp hjólið. Aðrar þjóðir eru búnar að ganga í gegnum nákvæmlega þetta á undan okkur. Við þurfum ekki að finna upp hjólið upp á nýtt. Við þurfum bara að tileinka okkur þau verkfæri sem aðrir eru búnir að sýna að eru að virka. Það þýðir ekki að vera feimin við það. Við þurfum bara að tala um það í stað þess að fara undan í flæmingi og þora ekki að horfast í augu við staðreyndir. En hér er ég komin til að leggja mitt af mörkum til þess að allir nemendur okkar fái að njóta sín (Forseti hringir.) á sínum forsendum og miðað við sína getu. Það er á okkar ábyrgð að svo megi verða.