157. löggjafarþing — 72. fundur,  18. feb. 2026.

afburðanemendur.

440. mál
[16:49]
Horfa

Sandra Sigurðardóttir (V):

Forseti. Menntun er besta fjárfesting sem nokkur þjóð getur ráðist í. Hún mótar framtíð barnanna okkar, samkeppnishæfni atvinnulífsins og styrk samfélagsins alls. Menntun á ekki að vera háð póstnúmeri, hæfileikum eða uppruna nemandans. Við þurfum fyrst og fremst að tryggja að íslenskt skólakerfi standi jafnfætis því besta sem gerist í heiminum. Við ætlum ekki að ná þeim árangri með slagorðum heldur með breytingum. Snemmtæk greining og markviss eftirfylgni er lykilforsenda. Of margir hæfileikar fara undir radarinn í dag. Við þurfum að tryggja að sterkustu nemendurnir fái raunverulegar áskoranir en ekki biðverkefni. Hraðferð í greinum, valáfangar og aukið samstarf skólastiga verður að vera enn öflugra. Mikilvægast af öllu er að styðja fagmennsku kennara. Í því sambandi er margt hægt að gera. Skoða mætti t.d. inntak kennaranámsins og hvernig það fellur að þeim áskorunum sem mæta kennurum í starfi. Stærri og fjölbreyttari nemendahópar gera kennurunum ekki auðveldara fyrir. En það stendur ekki á fagfólkinu að koma til móts við nemendur, kerfið verður að leggja (Forseti hringir.) sitt af mörkum líka. Sterkasta fjárfestingin sem nokkur þjóð getur ráðist í er menntun. Eftir hverju erum við að bíða?