afburðanemendur.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka aftur fyrir þessa góðu umræðu sem hér fer fram í dag. Ég vil nú byrja á því að vísa því aðeins frá að ég tengi ekki alveg við þessa miklu stefnubreytingu að hér hafi í tíð þessarar ríkisstjórnar verið talað gegn afburðanemendum. Ég held að það sé úr lausu lofti gripið. Það sem ég hef samt greint úr umræðunni hér í þingsal og á fleiri vettvöngum er einmitt að forgangsraða meira grunnfærni og forgangsraða stærðfræðikennslu, að læra að lesa og skrifa. Það er mjög mikilvægur grunnur til að byggja á en það er ekki 5. og 6. hæfniþrepið. Það er einmitt grunnurinn að því að geta náð þessum efri þrepum. Þegar þú ert kominn í 5. og 6. hæfniþrepið snýst þetta miklu meira um að geta beitt þessari færni í rökræðu og tekið saman ólíka hugmyndafræði, samkvæmt alla vega PISA ef maður flettir því upp, úr því að ég sé að sumir þingmenn hrista hér hausinn. Við þurfum að vera meðvituð um það að á sama tíma og við verðum að tryggja að grunnurinn sé sterkur, að nemendur okkar kunni að lesa og skrifa, þá verður að vera sveigjanleiki og svigrúm í kennslustarfinu svo afburðanemendur geti komist upp úr því að vera að vinna í skriftarheftum og stærðfræðinni og yfir í það að leysa flóknari verkefni við hæfi.