afburðanemendur.
Frú forseti. Ég vil þakka þeim sem hafa komið hér upp í umræðunni og þakka fyrir hana, hún er góð. En ég verð að lýsa yfir vonbrigðum mínum með þingmenn Samfylkingarinnar í þessari umræðu. Hér kemur hv. þm. Guðmundur Ari Sigurjónsson og talar um 5. og 6. hæfniþrepið, að það tengist einhvern veginn öðru heldur en þessum grunnþáttum. Það er ekki þannig. Við þurfum að hafa orðaforðann og hugtakaskilninginn til að geta tengt saman og búið til nýja þekkingu. Þetta er algerlega grunnhugmynd þess sem hv. þingmaður nefnir hér, að við höfum siglt upp á sker. Hún kristallaðist í orðum þingmannsins, hún kristallaðist þar. Við þurfum á grunnþekkingunni að halda til að ná afburðahæfni og byggja síðan ofan á hana. Það er ekki nóg að teikna upp einhverja strámenn hér og ráðast á þá. Þetta verður að vera á hreinu.
Við þurfum að viðurkenna vandann og ekki fara í vörn. Vörnin birtist hér áðan hjá báðum hv. þingmönnum Samfylkingarinnar. Við verðum að hafa þannig umgjörð að allt verði eins og best verður á kosið: góða námskrá, góð samræmd, raunveruleg próf og afburðakennara. Við þurfum að endurskoða kennaranámið frá A til Ö. Það er eitthvað sem ég held að flestir viti. Við skulum átta okkur á því að í markmiðagrein grunnskólalaga stendur, með leyfi forseta: „Hlutverk grunnskóla, í samvinnu við heimilin, er að stuðla að alhliða þroska allra nemenda og þátttöku þeirra í lýðræðisþjóðfélagi sem er í sífelldri þróun.“ Þegar við erum með nemendahóp þar sem 40% nemenda eru ekki með grunnfærni í lesskilningi þá er alveg ljóst að þeir munu búa við skert lífsgæði til framtíðar. Það er alveg ljóst. Og í stað þess að horfast í augu við vandann þá hvet ég Samfylkinguna, því að mér heyrist að hinir stjórnarflokkarnir báðir geti horfst í augu við vandann, að opna augun því að það er ekki boðlegt að halda þessari vegferð áfram þar sem allt of stór hluti nemenda er ekki með grunnfærni í lesskilningi, mjög eru fáir með afburðahæfni og nemendum líður (Forseti hringir.) heldur ekki nógu vel. Þetta verðum við að laga. Ég treysti hæstv. ráðherra, og (Forseti hringir.) ég er í liði með hæstv. ráðherra, til að halda áfram (Forseti hringir.) og reyna að bylta kerfinu þannig að börnin okkar nái árangri í lífi og leik og að þeim líði vel og framtíð Íslands verði björt með afburðahæfni.