afburðanemendur.
Frú forseti. Ég þakka fyrir þessa frábæru umræðu. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen og öllum þeim hv. þingmönnum sem hafa komið hér upp og tjáð sig í þessari umræðu. Staðreyndin er einfaldlega sú að það er á okkar ábyrgð að byggja börnunum okkar bjarta framtíð. Það er bara á okkar ábyrgð. Það er á okkar ábyrgð að menntakerfið okkar sé tækifæri þeirra á þeirri vegferð. Það er á okkar ábyrgð að hvert og eitt þeirra, afburðanemendur sem aðrir nemendur, fái að njóta sín í menntakerfinu á þeim forsendum sem fyrir hendi eru hverju sinni.
Mig langar að nefna lítið dæmi sem olli mér bara nokkuð miklum áhyggjum. Ég var í afmæli hjá barnabarni núna um helgina. Hann varð sjö ára. Hann byrjaði sex ára í grunnskóla og hann var læs. Það var ekkert sem var meira gaman en að lesa fyrir pabba og mömmu áður en hann fór í skóla. Hvernig ætli standi á því að núna hálfu ári seinna að þá fer hann bara helst að grenja þegar hann á að lesa? Hann hefur engan áhuga á að lesa og það eru engar frekari framfarir í lestri.
Ég hef velt því fyrir mér: Hvernig stendur á þessu þegar við erum að sjá að börnin koma með ákveðinn metnað, ákveðin markmið og ákveðna gleði og einhvern veginn fer það bara út? Hvernig stendur á þessu? Þetta á líka við um það þegar börnin okkar eru að útskrifast með lélegan lesskilning og svo þessa miklu erfiðleika, um 40% þeirra að jafnaði, eftir tíu ára grunnskólagöngu. Hvaða framtíð bíður barnanna okkar, eins og hv. þm. Jón Pétur Zimsen bendir hér réttilega á? Það er á okkar ábyrgð. Við verðum hreinlega ábyrg fyrir því að þessi börn hafa ekki fengið þau tækifæri sem þau eiga skilið í okkar ríka samfélagi þar sem við virðumst vilja geta státað okkur af því að vera best og mest í öllu. En það er bara því miður ekki þannig. Við erum búin að opna augun (Forseti hringir.) fyrir verkefninu. Við ætlum að takast á við verkefnið. Við ætlum að gera það saman, öll ríkisstjórnin, (Forseti hringir.) Samfylkingin sem aðrir flokkar í ríkisstjórn. Við erum saman í þessari ríkisstjórn (Forseti hringir.) og við erum öll einhuga um það. Við þurfum að horfast í augu við verkefnið og við ætlum að leysa það og við ætlum að gera það saman.