157. löggjafarþing — 73. fundur,  18. feb. 2026.

lengd þingfundar.

[17:02]
Horfa

Forseti (Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir):

Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 10. gr. þingskapa, um lengd þingfundar, er það tillaga forseta að þingfundur geti staðið lengur í dag en hvað þingsköp kveða á um. Er óskað eftir atkvæðagreiðslu um þessa tillögu forseta? (Gripið fram í: Já.) Atkvæðagreiðsla um lengd þingfundar mun fara fram með öðrum atkvæðagreiðslum nú eftir skamma stund.