157. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2026.

áhrif tengingar bóta almannatrygginga við launavísitölu.

[10:37]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Frú forseti. Áfram bætist í hóp málsmetandi gagnrýnenda frumvarps ríkisstjórnarinnar um tengingu bóta almannatrygginga við launavísitölu: Samtök atvinnulífsins, Alþýðusamband Íslands, fjármálaráðuneytið og fjármálaráð, hagfræðingarnir Axel Hall og Gylfi Zoëga, sjálfur seðlabankastjóri, varaseðlabankastjóri og nú síðast Vilhjálmur Birgisson og Sólveig Anna Jónsdóttir, fyrrum félagar hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra. Ætlar ríkisstjórnin að halda því fram að allt þetta málsmetandi fólk sé á móti því að bæta kjör öryrkja og eldri borgara? Nei, auðvitað ekki, ekki frekar en við hér í stjórnarandstöðunni. Þau, rétt eins og við Sjálfstæðismenn, sjá að þetta frumvarp er meingallað. Það er meingallað og nær ekki því markmiði sem ríkisstjórnin er að reyna að leggja áherslu á.

Þar sem ríkisstjórnin segir alla aðra misskilja þetta frumvarp vil ég fá nákvæman skilning hæstv. ráðherra á þessu máli. Hæstv. ráðherra byggir varnir sínar á því að með grunnpunkti og uppsöfnuðum hækkunum í stað 12 mánaða breytinga eins og verið hefur sé verið að losna við hinn svokallaða tvöfalda lás. Ég spyr því beint um fyrirsjáanlegar afleiðingar þessarar aðgerðar. Ef miðað er við uppsafnaða hækkun launavísitölu og vísitölu neysluverðs frá grunnpunkti líður ekki á löngu þar til launavísitalan verður komin langt yfir vísitölu neysluverðs og sú síðarnefnda mun ekki ná henni aftur. Þá verður verðlagsviðmið í reynd gagnslaust til framtíðar. Þá kemur að spurningunni sem snýr að fólkinu sem á að verja. Ef verðbólguskot (Forseti hringir.) verða á einstaka árum munu bótaþegar sitja eftir með kaupmáttarrýrnun því að viðmiðið sem á að tryggja að þeir dragist ekki aftur mun ekki virka þegar launavísitalan er langt á undan í uppsöfnuðum samanburði. (Forseti hringir.) Er sameiginlegur skilningur innan ríkisstjórnarinnar á því að þetta geti þýtt að verðlagsgólfið verði í reynd óvirkt eftir tiltölulega skamman tíma?