áhrif tengingar bóta almannatrygginga við launavísitölu.
Frú forseti. Það er nú ánægjulegt að ríkisstjórninni hafi tekist að finna einn hagfræðing sem er sammála þeim, en þó eingöngu að hluta. Gylfi Magnússon hagfræðingur tók fram í þessari grein að þetta frumvarp væri óljóst og það þyrfti að skýra það betur. Ég held að hæstv. ráðherra ætti að taka þau orð til sín.
Virðulegi forseti. Í þessu máli virðist ekki ríkja samhljómur innan ríkisstjórnarinnar um hvað frumvarpið gerir í reynd. Hæstv. forsætisráðherra hefur ítrekað sagt að gagnrýni sé byggð á misskilningi, að það sé ekki tvöfaldur lás og að fjárveitingavaldið sé hjá Alþingi á hverju einasta ári þannig að pólitíkin ákveði bætur ár hvert með tilliti til heimilda í fjárlögum. Hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra lýsir frumvarpinu hins vegar á þann veg að lífeyrir skuli fylgja launavísitölu og, að mér heyrist, burt séð frá því hvað pólitíkin ákveður ár hvert. Ég spyr því ráðherra aftur, og nú með orð forsætisráðherra í huga: Er þetta lögbundin sjálfvirk tenging við launavísitölu með lágmarki (Forseti hringir.) sem bindur hendur fjárlagavaldsins? Eða er þetta pólitísk ákvörðun í fjárlögum ár hvert? Og nú bið ég ráðherra að svara ekki með vísan í greinargerðina því að það vita allir að hún er ekki lagatexti. Er nema von að spurt sé hvort það sé ætlun ríkisstjórnarinnar að standa sérstakan vörð um kjör bótaþega eða ekki því að hér tala menn í Flokki fólksins og í Samfylkingunni algerlega í kross.