157. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2026.

hækkun bóta í samræmi við launavísitölu.

[10:46]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Ég ætla að fá að höggva í sama knérunn og fyrri fyrirspyrjandi. Ég hafði hins vegar væntingar um að geta átt orðastað við hæstv. mennta- og barnamálaráðherra, formann Flokks fólksins, sem hefur farið mikinn í þessu máli sem lýtur að frumvarpi um launavísitöluna og hér var rætt áðan. Fyrst vil ég nefna að það er rétt sem hefur fram komið hér að það hefur bæst í hóp gagnrýnenda frumvarpsins. Hér var vísað í virðulegan prófessor við Háskóla Íslands, Gylfa Magnússon, um það erindi og mér þykir nú hæstv. ráðherra fullmetnaðargjarn fyrir hönd samfélagsmiðilsins Facebook að vísa í það sem fræðiritgerð en þetta var í 24 lína færslu Gylfa Magnússonar þar sem koma fram einhverjar vangaveltur hans um áhrifin. Hins vegar er alveg skýrt að hann bendir á að orðalagið sé ekki nógu skýrt um það hvað eigi að gera þegar laun hækka ýmist meira eða minna en verðlag. Hann telur síðan auðvelt að laga það en leggur í sjálfu sér ekkert til í þeim efnum.

Í þessu ljósi langar mig líka að velta upp þeim ummælum sem hafa fallið af hálfu forsætisráðherra og hér hafa verið rakin en líka af hálfu þingmanna stjórnarflokkanna, annarra en Flokks fólksins, varðandi þetta orðalag. Málið er meingallað, einmitt sérstaklega vegna orðalagsins og ég tel að það þurfi að liggja aðeins meira yfir þessu máli. Það hefur komið fram t.d. að haft var eftir einum hv. þingmanni að það sé auðvitað alltaf Alþingis að ákveða með fjárlögum hvers árs hvernig greiðslurnar þróist og það sé í sjálfu sér engin sjálfstýring. Mér finnst því æskilegt að hæstv. ráðherra varpi ljósi á þetta, þetta er í samræmi við orð forsætisráðherra líka, hvort hann líti svo á að þetta sé sjálfstýring, að bótaþegar geti treyst því að hvert einasta ár muni bætur hækka í samræmi við launavísitölu. Það er kannski meginspurningin vegna þess að ég veit að mjög margir hafa einhverjar væntingar um það. (Forseti hringir.) Á sama tíma er vakin athygli á því að það er auðvitað Alþingi sem stýrir fjárlögum á hverju ári.