157. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2026.

hækkun bóta í samræmi við launavísitölu.

[10:50]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Það er greinilega komið annað hljóð í strokkinn líka af hálfu hæstv. ráðherra frá Flokki fólksins og það er í rauninni kannski stóra fréttin í þessari umræðu. Hæstv. ráðherra vísar hér núna til viðmiða en ekki til tengingar launavísitölu, til viðmiða. Þá er rétt að þeir sem bíða eftir því að þetta lagafrumvarp nái fram að ganga átti sig á því að það er kannski ekki um þessa sjálfstýringu að ræða sem látið er að liggja og sem ráðherrar og þingmenn Flokks fólksins hafa verið að halda fram. Við höfum dæmi í lögum um vísun til vísitölu eða hækkunar á launum. Þeim lagaákvæðum hefur ítrekað verið ýtt til hliðar vegna tiltekinna ástæðna. Mér finnst það þess vegna ómerkilegt að tala þannig til þeirra sem vænta þessara bóta að hér sé um einhverja sjálfstýringu að ræða þegar augljóslega er bara verið að hræra í orðalaginu til þess að slá sér upp. Ég spyr hæstv. ráðherra, (Forseti hringir.) í ljósi ábendinga Gylfa Magnússonar sem eru þær nýjustu, hvort ekki sé tilefni til þess að leggjast aftur yfir þetta mál og skýra í lagatextanum sjálfum hvað menn ætla raunverulega að fara með þessari lagabreytingu.