hækkun bóta í samræmi við launavísitölu.
Frú forseti. Ég reikna fastlega með því að þegar og ef þetta frumvarp verður að lögum þá verði farið eftir þeim og eftir því viðmiði sem frumvarpið segir til um. Fjárstjórnarvaldið er, enn og aftur, alltaf Alþingis og það er hluti af stjórnarskránni. Varðandi mögulega breytingu og skýrleika frumvarpsins, þá er það nefndarinnar að ákveða það og ég veit ekki betur en að málið sé komið til nefndar milli 2. og 3. umræðu og það er þá nefndarinnar að taka endanlega ákvörðun um það. En ég get tekið undir gagnrýni Gylfa Magnússonar frá því í morgun að mögulega þurfi að skýra þetta betur í lagafrumvarpinu sjálfu. Ég tek líka undir með honum, í raun í andstöðu við það sem hér hefur verið haldið títt fram á Alþingi Íslendinga, að hér muni allt bókstaflega fara á hliðina, hér hafa nú verið dómsdagsspárnar og dómsdagsræðurnar fluttar í gríð og erg um að hér fari allt á hliðina, verði þetta frumvarp að lögum — það á auðvitað ekki við nokkur einustu rök að styðjast.