157. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2026.

Skýrsla greiningardeildar ríkislögreglustjóra um skipulagða brotastarfsemi á Íslandi.

[11:09]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Mér er það mikill heiður að fá að koma hér og eiga samræður við hæstv. dómsmálaráðherra um mjög mikilvægan þátt í samfélaginu, þ.e. þá ógn sem steðjar að nú um stundir af uppgangi skipulagðra glæpahópa á Íslandi. Um skipulagða glæpastarfsemi segir m.a., með leyfi frú forseta:

„Vísbendingar eru um að þessi starfsemi sé mun umfangsmeiri en flestir höfðu ætlað. […] Í mati þessu er að finna þunga áherslu á aukin umsvif skipulagðra erlendra glæpahópa á Íslandi.“

Síðan segir:

„Á hinn bóginn er nauðsynlegt að greint sé frá þessari þróun eins hispurslaust og frekast er kostur. Þetta er ekki síst mikilvægt til þess að almenningi öllum og stjórnvöldum sé ljóst að lögreglan á Íslandi stendur frammi fyrir veruleika, sem tekið hefur grundvallarbreytingum á skömmum tíma.“

Svo mörg voru þau orð, frú forseti. Þið ályktið e.t.v. að ég sé að lesa upp úr nýjustu skýrslu um skipulagða glæpahópa. En nei, ofangreindar tilvitnanir voru skrifaðar í skýrslu deildarinnar árið 2008, frú forseti, fyrir 18 árum síðan. Og hver hafa viðbrögðin verið? Nei, það hefur ekki verið hlustað á þessi aðvörunarorð lögreglunnar. Síðan hafa komið út fleiri skýrslur frá lögreglunni, þessi fyrsta 2008, síðan 2015, aftur 2017, 2019, 2021. Síðan kom nokkurt hlé og síðasta skýrsla kom út á síðasta ári, 2025. Alls staðar, frú forseti, má finna þessi sömu eða svipuð viðvörunarorð: Bregðist við eða vandinn mun vaxa.

Frú forseti. Nú eru átta ár síðan ég efndi hér á þingi til umræðu um nákvæmlega sama mál, uppgang skipulagðrar glæpastarfsemi hér á landi. Þar benti ég á viðvörunarorð lögreglu um þessa hættu og síðan hefur þessum hópum einungis fjölgað og þeim vaxið ásmegin. Í fyrstu skýrslunni er talað um að þessir skipulögðu hópar gætu verið fimm. Í skýrslunni 2017 eru þeir taldir helmingi fleiri eða tíu og í nýjustu skýrslunni, átta árum síðar, hefur tala þeirra tvöfaldast á ný. Nú eru þeir taldir vera 20. Strax árið 2019 er mat lögreglu vegna starfsemi skipulagðra glæpahópa hér á landi með eftirfarandi hætti, með leyfi forseta: „Gífurleg áhætta.“ Það er 2019. Það er hæsta stig áhættu í greiningu lögreglu. Í sömu skýrslu er geta lögreglunnar til að takast á við skipulagða glæpastarfsemi metin mjög lítil. Og enn fjölgar þessum hópum, frú forseti. Þessa hópa þarf að greina, þá þarf að leysa upp og vísa brott úr landi þeim sem ekki eru íslenskir ríkisborgarar í þessum hópum.

Frú forseti. Eitt mikilvægasta verkefni stjórnvalda í okkar samfélagi er að tryggja líf og öryggi borgaranna og það verður ekki gert með því að sitja hjá og horfa á brotastarfsemi vaxa ár frá ári. Hér verður að bregðast við. Grunnurinn er auðvitað, frú forseti, að lögreglunni þarf að færa fullt afl til að takast á við verkefnið. Lögreglunni þarf að færa allar þær heimildir sem nauðsynlegar eru til að hafa í fullu tré við þessa aðila og ekki minni en í nágrannalöndum okkar. Okkar verkefni, löggjafans, er að styrkja og einfalda lagaumgjörðina svo unnt sé að takast á við þetta erfiða verkefni.

Frú forseti. Hér er ekki í boði að sitja með hendur í skauti.