Skýrsla greiningardeildar ríkislögreglustjóra um skipulagða brotastarfsemi á Íslandi.
Frú forseti. Ég þakka málshefjanda, hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni, fyrir þessa umræðu. Hann segir: Bregðist við eða vandinn mun vaxa. Ég er hjartanlega sammála og hef verið í þessu verkefni, að bregðast við, ráðast að, þrengja að skipulögðum brotahópum í heilt ár. Nýjasta greiningarskýrsla ríkislögreglustjóra frá október 2025 er einmitt hryggjarstykkið í nýrri stefnu stjórnvalda og aðgerðum stjórnvalda gegn skipulagðri brotastarfsemi sem kynnt var í upphafi mánaðar. Þessi stefna ríkisstjórnarinnar, þessi stefna okkar, er sú fyrsta sinnar tegundar hérlendis og heitir einfaldlega Öruggara Ísland. Það er markmiðið. Þar er markmiðið skýrt: Að stöðva þessa brotahópa, að stöðva frekari vöxt þeirra, brjóta niður innviði þeirra þannig að þeir missi slagkraftinn og viðnámsþróttinn til að halda úti starfsemi sinni hér á landi. Er þetta einfalt verkefni? Nei. Þess vegna þurfum við að vera fókuseruð og sækja að þeim úr öllum áttum.
Þingmaðurinn spyr: Hvernig stöðvum við þessa hópa? Greiningar leiða okkur að svarinu. Skipulögð brotastarfsemi á Íslandi er fyrir löngu, eins og þingmaðurinn segir, orðin alþjóðleg og fjölþætt en greiningar sýna að kjarninn í árangrinum er samvinna, þ.e. traust öflun og miðlun upplýsinga og alþjóðleg samvinna.
Það er undirstrikað í þessari skýrslu að peningaþvætti á Íslandi sé í dag talið hlaupa á milljörðum og er burðarás í skipulagðri brotastarfsemi. Það er varað við því að börn og ungmenni dragist inn í þessa starfsemi og að það kalli á viðeigandi úrræði og stuðning.
Viðbrögð ríkisstjórnarinnar í stefnunni Öruggara Ísland byggja á þremur stoðum. Það er skilvirkni, það eru virkar og gagnreyndar afbrotavarnir og aukið og markvisst alþjóðlegt samstarf. Þegar við erum að tala um þessar aðgerðir þá nefni ég þetta. Það er í gangi vinna um að endurskoða ákvæði hegningarlaga um skipulögð brotasamtök og heimildir til refsihækkunar, auk þess að styrkja úrræði lögreglu til að takast á við sífellt flóknari og sérhæfðari mál. Það er umfangsmikill aðgerðapakki í smíðum í dómsmálaráðuneytinu sem stendur.
Í öðru lagi erum við að horfa á afbrotavarnir og samfélagslegar aðgerðir. Þar erum við ekki síst að horfa á upplýsingamiðaða löggæslu og tæknilega getu lögreglunnar. Í því felst líka að efla söfnun og greiningu farþegaupplýsinga og að lögfesta heimildir um notkun og rekstur löggæslumyndavéla og sérstök áhersla á aðgerðir til að koma í veg fyrir nýliðun og styðja síðan einstaklinga til að rjúfa tengsl við þessa brotahópa.
Í þriðja lagi höfum við beint spjótum okkar að þeirri sérstöku áskorun að brotahópar ferðast landa á milli til að stunda brotastarfsemi sína og þegar hefur verið ráðist í mikla vinnu við að samræma og forgangsraða aðgerðum yfirvalda til að fara í brottvísanir af landinu. Við erum þegar að gera þetta og erum núna að horfa á og farin að brottvísa brotahópum frá EES-ríkjum og gera þeim erfiðara um vik að athafna sig hér á landi. Brottvísunum er núna beitt í mjög auknum mæli og lögreglan í landinu stendur svo sannarlega vaktina þar.
Það er mikilvægt að halda því til haga að skipulögð brotastarfsemi er hagnaðardrifin. Þess vegna er ekki bara leiðin að fara að þyngja refsingar heldur horfa á hagnaðinn með því að svipta brotahópa ólögmætum ágóða. Þess vegna lagði ég fram frumvarp í haust með víðtækum breytingum til að efla getu stjórnvalda til að fara í peningana og endurheimta ágóðann. Það frumvarp varð að lögum nú um áramót.
Þingmaðurinn segir: Það er ekki í boði að sitja hjá. Þingflokkur Miðflokksins var nú samt klofinn í afstöðu sinni til þessa máls. Hvað gerði hluti þingflokksins? Hann sat hjá um þessar aðgerðir. Við verðum að vera staðföst. Við getum ekki leyft okkur að vera hikandi. Það gildir líka um þau okkar sem sitja hér í þessum þingsal.
Í Öruggara Íslandi er jafnframt aðgerð um að meta hvort herða þurfi enn frekar ólina og skoða heimildir til upptöku verðmæta í auknari mæli.
Ég þakka fyrir umræðuna og hlakka til að hlusta á þingmenn ræða þetta mikilvæga verkefni hér í dag og taka svo aftur til máls að því loknu.