157. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2026.

Skýrsla greiningardeildar ríkislögreglustjóra um skipulagða brotastarfsemi á Íslandi.

[11:19]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Frú forseti. Skýrslan sem hér er til umræðu er skýr áminning um að skipulögð brotastarfsemi er ekki lengur fjarlæg eða fræðileg ógn. Hún er að þróast, aðlaga sig og festa sig í sessi. Þegar greiningaraðilar lögreglu lýsa því að hópum hafi fjölgað hratt á fáum árum er það merki um að þeir telji sér fært að starfa hér. Þeir finna hér veikleika og þeir sjá augljósan ávinning í því að byggja hér upp áhrif sín.

Afstaða Sjálfstæðisflokksins í þessum málaflokki er skýr: Frelsi borgaranna krefst öryggis. Réttarríkið verður að standa með almenningi í landinu, venjulegu fólki sem vill lifa friðsamlegu lífi, reka fyrirtæki, ala upp börn og treysta því að lögin virki sem skyldi. Ríkið á ekki að teygja sig inn í líf fólks að óþörfu en það á að vera staðfast þegar kemur að þeim sem grafa undan samfélaginu með ofbeldi, hótunum og skipulagðri glæpastarfsemi. Það sem skiptir mestu er að brjóta upp rekstrargrundvöll brotahópanna. Við sjáum hversu langt þessir hópar eru komnir í t.d. peningaþvætti og öðru sem getur falið sporin og endurfjárfest í ólöglegri starfsemi. Ef við tökum gróðann af glæpahópunum þá veikjum við áhrif þeirra. Þess vegna þurfum við markvissa vinnu við að elta peningana, efla haldlagningu og upptöku ólögmæts ávinnings og tryggja að fjármálakerfið og löggæslan vinni saman á raunsæjan hátt.

Sem dómsmálaráðherra lagði ég áherslu á afbrotavarnir og skýrari heimildir til fyrirbyggjandi vinnu. Vorið 2024 náðum við Sjálfstæðismenn í gegn breytingum á lögreglulögum sem gerðu löggæslu markvissari og jafnframt með skýrari ramma, ábyrgð og eftirlit. Þannig verjum við bæði öryggi og réttindi borgaranna. Næsta skref er að tryggja getu, mannskap, sérhæfingu og tækni svo að við séum ekki alltaf að bregðast við eftir á heldur stöðvum brotin áður en þau verða að viðvarandi mynstri.

Ég vil hvetja hæstv. dómsmálaráðherra til dáða í þessum efnum, því að rétt eins og hæstv. ráðherra sagði áðan verðum við að vera staðföst. Við megum ekki hika.