157. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2026.

Skýrsla greiningardeildar ríkislögreglustjóra um skipulagða brotastarfsemi á Íslandi.

[11:28]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir þessa umræðu. Ég held að það þurfi enginn að velkjast í vafa um það að hér er auðvitað þverpólitísk samstaða, ekki bara hér inni á þingi en að ég held meðal allra Íslendinga, um að menn vilji berjast gegn skipulagðri glæpastarfsemi og glæpum almennt. Menn eru áfram um að það náist einhver árangur í því og að stjórnvöld nái að halda í við þá þróun sem hefur orðið á glæpastarfsemi almennt, sem er bara gangur lífsins. Við á þessu þingi leggjumst auðvitað öll á árar með það. Hins vegar er rétt að nefna það vegna ummæla hæstv. ráðherra í upphafi þessarar umræðu varðandi Miðflokkinn að Miðflokkurinn, eins og þessi umræða ber vitni um, er mjög áfram um að það sé tekið á þessum málum. Það kunna hins vegar að koma hingað inn mál á þinginu sem Miðflokkurinn hefur stutt algerlega að efni til. En vegna einstakra ákvæða sem menn telja að hafi ekki verið fullrædd eða fullútfærð þá kjósa menn að sitja hjá í sumum málum. Það þýðir ekki að menn styðji ekki málið. Það þýðir hins vegar, og ég legg á það áherslu vegna þess að ég veit að hæstv. ráðherra er mér sammála um það, að þessi mál eru vandmeðfarin, oft lagatæknileg og miklir hagsmunir einstaklinga undir, bæði fórnarlamba en líka ásakaðra manna. Það þarf að fara varlega með valdheimildir ákæruvaldsins sem hefur undanfarin misseri setið undir ámælum um að hafa misfarið með miklar valdheimildir sem því eru fengnar með lögum.

Hæstv. ráðherra nefndi að það væri í gangi heilmikil vinna við lagabreytingar og ég rek augun í það í skýrslunni að vakin er athygli á því að það sé ekki samræmd hugtakanotkun í almennum hegningarlögum. Þar er t.d. talað um skipulögð brotasamtök en ekki skipulagða glæpastarfsemi sem okkur er kannski tamara. Það hefur ekki oft reynt á þetta ákvæði, 175. gr. almennra hegningarlaga, og raunar bara tvisvar sakfellt. Það væri áhugavert að vita hvort það stæði til að samræma þessi hugtök og útvíkka einhvern veginn eða a.m.k. (Forseti hringir.) útfæra þannig að þau nái betur yfir þá starfsemi sem raunverulega á sér stað hér á Íslandi þegar kemur að glæpum.

Ég vil líka (Forseti hringir.) nefna það — það er komið rautt ljós, er klukkan biluð, virðulegi forseti?

(Forseti (ÞSv): Ég held ekki.)

Ég vildi nefna að þessi umræða mætti fara fram hér oftar í þingsal. — Klukkan tifar enn þá, er ekki svo?

(Forseti (ÞSv): Þingmaðurinn er kominn fram yfir tímann.)

Þingmaðurinn hefur lokið máli sínu að svo stöddu.